Tax free
Þegar verið er að versla, fatnað, skó og fleira er gott að biðja um TAXFREE nótu, því þetta getur orðið ágætist upp, ef mikið er verslað. Hér eru leiðbeiningar um hvernig á að bera sig að varðandi taxfree.
Í Torrevieja og nágrenni eru tvær stórar verslunarmiðstöðar, Habaneras og La Zenina Boulevard.
Þegar verið er að versla, fatnað, skó og fleira er gott að biðja um TAXFREE nótu, því þetta getur orðið ágætist upp, ef mikið er verslað. Hér eru leiðbeiningar um hvernig á að bera sig að varðandi taxfree.
Þegar greitt er með greiðslukortum, er um að gera að fara varlega, passa upp á kortið og pinnúmerið. Ekki geyma pinnúmerið á blaði í sama veski og þið geymið greiðslukortið, ef vasaþjófar næðu veskinu af ykkur. Einnig að passa að vera ekki með öll greiðslukortin í sama veskinu.
Það er mjög góð regla að setja kassastrimilinn í innkaupapokann, þegar verslað er í stórverslunum, t.d. fataverslunum, því ef afgreiðslustúlkan gleymir einhverra hluta vegna að taka þjófavörnina af og þjófavarnarkerfið fer í gang, þegar farið er út úr versluninni, þá er gott að geta framvísað kassastrimlinum.
Þegar ökutæki er skilið eftir, hvort sem er í bílastæðishúsi stórmarkaða eða úti á götu, passa þá upp á að hafa ekki nein verðmæti sýnilegt, setja alla innkaupapoka, tölvur, leiðsögutæki og önnur verðmæti í farangursrými ökutækis, þannig að það sjáist ekki inn um glugga.
Í Habaneras verðslunarmiðstöðinni eru yfir 60 verslanir, þekkt merki eins og C&A, H&M, Womens´secret, Pull&Bear og fleiri merki. Auðvelt aðgengi er að verslunarmiðstöðinni og góð bílastæði. Á efstu hæðinni er leiksvæði fyrir börnin, með ýmsum leiktækjum hringekju og fleira. Á jarðhæð miðstöðvarinnar er góð byggingarvöruverslun. Hér er slóðin inn á heimsíðu Habaneras. Gengt Habaneras er stórt svæði með ýmsum veitingastöðum, leiktækja-og keilusal auk kvikmyndahúss.
Hér er heimilsfang verslunarmiðstöðvarinnar: Av. Rosa Mazón Valero, 7, 03184 Torrevieja.
La Zenina verslunarmiðstöðin er rétt utan við Torrevieja. Þarna er fjöldi verslana, veitingahúsa og ýmis afþreying. Góð aðkoma er að miðstöðinni og góð bílastæði. Mikið af þekktum vörumerkjum eru í boði í La Zenina. Hér er slóðin inn á heimasíðu verslunarmiðstöðvarinnar.