Golfvellir Costa Blanca norður.

Á þessari síðu munum við setja inn upplýsingar um golfvelli á norður svæði Costa Blanca en það er svæðið “ofan” við Alicante og upp að Valencia.  Við erum síðan með aðrar síður, þar sem við setjum inn golfvelli í kringum Alicante borg og Costa Blanca suður og síðan síðu, þar sem við setjum inn golfvelli í kringum Valencia.

Golf

Golf er íþrótt þar sem leikmenn reyna að koma kúlu í holu í sem fæstum höggum og er notast við kylfur með mismunandi fláa. Golf er ein af fáum íþróttum sem ekki er spiluð á ákveðið stórum velli eða vallarhelmingi, stærðin fer eftir stærð golfvallarins.

Golf er talið vera frá Skotlandi og hefur verið spilað í að minnsta kosti 500 ár á Bretlandseyjum. Elsti golfvöllur í heimi er Old Course völlurinn í St. Andrews. Golf eins og við þekkjum það í dag hefur verið spilað á Old Course í um 600 ár, svipaðar íþróttir voru þó leiknar nokkrum öldum fyrr.

https://is.wikipedia.org/wiki/Golf

Costa Blanca paradís golfarans

Það hefur verið sagt að Costa Blanca svæðið sé paradís golfarans en á svæðinu er fjöldinn allur af golfvöllum sem eru fyrsta flokks og hannaðir af fremstu golfurum heims.
Vellirnir á svæðinu eru opnir öllum og eru eins ólíkir og þeir eru margir. Ráðlegt er að panta rástíma fyrirfram en það er misdýrt að spila á þessum völlum. Á flestum völlunum er hægt að leigja golfbíla, kerrur eða golfsett. Vellirnir eru yfirleitt opnir frá klukkan 08:00 og fram undir myrkur. Í klúbbhúsunum er yfirleitt boðið upp á góða þjónustu fyrir spilara og gesti, góðir veitingastaðir, golfbúðir og fleira.

Ifach golf club

Golfvöllurinn var endurgerður í febrúar 2011 en upprunalega var hann hannaður árið 1974 af virtum golfvallahönnuði D. Javier Arana.  Heimasíða vallarins er:  http://golfifach.com/en/

Heimilisfang og sími:

Urbanización San Jaime
Calle Micheta, 5
Benissa (Alicante)
+34 966 49 71 14

Ifach golfvöllurinn

Altea golf club

Altea golfvöllur er i næsta nágrenni við Altea og Benidorm.

Völlurinn var opnaður árið 1984 en árið 2004 var byrjað að vinna að endurbótum á honum, klúbbhúsinu og öðru sem þurfið að laga og bæta.  Í dag er þetta glæsilegur 9 holu völlur.

Heimasíða vallarins er:  http://www.alteagolfclub.com/en/el-club/

Hér er heimilsfangið:  Sierra Altea Golf s/n.
Apdo. Correos 939
03599 – Altea la Vella (Alicante)

La Galiana Campo de Golf

Hér er heimasíða vallarins: https://www.lagalianagolf.com/en/

Oliva Nova golf

Oliva nova golf

Þetta er 18 holu völlur, hannaður af Severiano Ballesteros árið  1995.

Hér er heimasíða vallarins:  http://www.olivanova.com/sports-and-leisure-sports-golf

Oliva Nova golfOliva Nova golf

La Sella golf

La Sella golf

Hér er heimasíða vallarins:  http://www.lasellagolf.com/en

La Sella golf

Hafðu samband!

Ef þig vantar einhverjar upplýsingar um Costa blanca svæði, sendu okkur þá fyrirspurn eða skilaboð og við reynum að finna út úr því sem þú ert að leita að.