Tax free
Þegar verið er að versla, fatnað, skó og fleira er gott að biðja um TAXFREE nótu, því þetta getur orðið ágætist upp, ef mikið er verslað. Hér eru leiðbeiningar um hvernig á að bera sig að varðandi taxfree.
Á Benidorm eru nokkrar verslunarmiðstöðar og fjöldi verslana. Við nefnum hér eina, sem er aðeins fyrir ofan Benidorm.
Þegar verið er að versla, fatnað, skó og fleira er gott að biðja um TAXFREE nótu, því þetta getur orðið ágætist upp, ef mikið er verslað. Hér eru leiðbeiningar um hvernig á að bera sig að varðandi taxfree.
Þegar greitt er með greiðslukortum, er um að gera að fara varlega, passa upp á kortið og pinnúmerið. Ekki geyma pinnúmerið á blaði í sama veski og þið geymið greiðslukortið, ef vasaþjófar næðu veskinu af ykkur. Einnig að passa að vera ekki með öll greiðslukortin í sama veskinu.
Það er mjög góð regla að setja kassastrimilinn í innkaupapokann, þegar verslað er í stórverslunum, t.d. fataverslunum, því ef afgreiðslustúlkan gleymir einhverra hluta vegna að taka þjófavörnina af og þjófavarnarkerfið fer í gang, þegar farið er út úr versluninni, þá er gott að geta framvísað kassastrimlinum.
Þegar ökutæki er skilið eftir, hvort sem er í bílastæðishúsi stórmarkaða eða úti á götu, passa þá upp á að hafa ekki nein verðmæti sýnilegt, setja alla innkaupapoka, tölvur, leiðsögutæki og önnur verðmæti í farangursrými ökutækis, þannig að það sjáist ekki inn um glugga.
Verslunarmiðstöðin La Marina er rétt ofan við Benidorm. Þarna er fjöldi verslana, m.a. IKEA auk þessu eru ýmis veitingahús þarna.
Hér er slóð inn á heimasíðu verslunarmiðstöðvarinnar.