Tabarca eyjan.
Undan strönd Costa Blanca, um 3 sjómílur utan við Santa Pola, er lítil eyja sem heitir Tabarca eyjan. Hún er um 1.750 metrar á lengd og um 300-500 metrar á breidd þar sem hún er breiðust. Eyjan heitir Tabarca eða „nýja Tabarca“ því eyja með sama nafni er undan strönd Túnis. Í kringum 1768 komu sjóræningjar frá Túnis og tóku yfir Tabarca eyjuna sem þá hét Isla plana eða flata eyjan. Sjóræningjarnir byggðu sér virki á eyjunni og stunduðu sjórán þaðan. Það er mjög gaman að fara út í eyjuna. Það fer bátur frá Torrevieja snemma að morgni og til baka seinni part dags, einnig fara bátar frá Santa Pola og Alicante. Í sumum bátunum er hægt að fylgjast með fjölskrúðugu sjávarlífinu í gegnum glugga á botni bátanna.
Eyjan er tvískipt, í austur hlutanum er þorpið með þröngum götum litríkum skreyttum húsum, lystagallerýum , börum, veitingahúsum og kirkju. Á vestur hlutanum er náttúran óspillt með troðnum göguslóðum kringum eyjuna. Þar er varðturn sem byggður var 1789 og notaður til að fylgjast með ferðum sjóræningja en á 19. öld notaður sem fangelsi, viti, kirkjugarður og kapella.
Á eyjunni er fjölskrúðugt fuglalíf.
Ofan við höfnina eru veitingahús, kaffihús og safn, sem segir sögu eyjunnar.
Baðströnd er góð og hægt er að leigja sér sólbekki
Ef fólk vill dvelja í eyjunni yfir nótt, þá eru gististaðir þarna.
Í lok 19 aldar voru íbúar eyjunnar í kringum 1.000 þá aðallega fólk sem tengdist fiskveiðum.
Í dag eru skráðir íbúar í kringum 50 talsins.
Sjón er sögu ríkari.
Ferðin frá Torrevieja tekur um 50 mínútur og er farið frá höfninni í Torrevieja klukkan 11 að morgni 6 daga vikunnar og komið til baka klukkan 18:00. Báturinn til Torrevieja fer frá eyjunni um 17:00 og um að gera að fylgjast með, þegar röðin fer að myndast á bryggjunni og fara þá í röðina, til að missa ekki af bátnum. Passa þarf upp á miðann sem maður fær við brottför í Torrevieja, því það þarf að framvísa honum við brottför úr eyjunni.