Jólagjafabæklingur frá Carrefour í Torrevieja

Jólagjafir í Carrefour.

Þessi bæklingur var að koma frá stórversluninni í Carrefour.  Hér eru jólagjafir á góðu verði.  Þessi bæklingur gildir frá 15 til 18 nóvember.

Carrefour

“Svartur föstudagur” í Habaneras verslunarmiðstöðinni í Torrevieja.

Black friday Habaneras

Dagana 23 til 25 nóvember 2018 verður “svartur föstudagur” í verslunarmiðstöðinni Habaneras í Torrevieja.

Það verður allt að 70% afsláttur í verslunum Habaneras.  Ýmsar skemmtanir verða í verslunarmiðstöðinni í tilefni daganna.

Torrevieja Tapas leiðin í nóvember 2018

Tapas leiðin í Torrevieja

Tapas í Torrevieja

Tvisvar á ári eru boðið upp á svokallaða Tapas leið eða Ruta de la tapa í Torrevieja en þá bjóða ýmis veitingahús og barir í miðbæ Torrevieja upp á tapas og drykk.  Það verða um 43 veitingahús/barir sem taka þátt þetta árið.

Í ár, verður boðið upp á þessa skemmtun á tímabilinu frá 15-25 nóvember en þó einungis á fimmtudögum til sunnudags, það er 15-18 nóv og 22-25 nóv.  Þetta er frá 12:00 til 16:30 og síðan aftur um kvöldið frá 19:30-23:00.

Þetta gengur þannig  fyrir sig, að fólk fær “vegabréf” og lætur stimpla það, þegar það kaupir tapas og drykk.  Síðan getur fólk kosið um besta tapas réttinn.  Þegar fólk hefur fengið 10 stimpla, þá er hægt að vinna ýmsa vinninga.

Verðið á tapas rétti og drykk er eftirfarandi:

Tapas hússins og drykkur  2.00 evrur

“Gourmet” tapas og drykkur 2,50 evrur.

Þið getið sótt tapas “vegabréfið” í upplýsingamiðstöð ferðamanna í Torrevieja.

Ruta de la tapa, Torrevieja