Kvöldverður, flamenco og hestasýning.

Kvöldverður, flamenco og hestasýning.

Á veitingahúsinu Villasalada, rétt utan við Torrevieja er sýning á hverju laugardagskvöldi, fyrst er kvöldverður og síðan hefst flamenco dans og síðan hestasýning.

Þessar sýningar eru á hverju laugardagskvöldi frá 2. Júní til 13. Október 2018.

Kvöldverður byrjar klukkan 19:00 en sýningin byrjar 21:30.
Frábær sýning þar sem dansarar, hestar og knapar sýna listir sínar. Ógleymanlegt kvöld.

Upplýsingar og hvar á að bóka
Facebook síða https://www.facebook.com/villasalada.es/
Miðasala: http://www.villasalada.es/
Netfang: info@villasalada.es
Heimilisfang: Carretera Torrevieja – Crevillente, Km. 3.300 (a 5 Km. de Torrevieja)
Veitingastaðurinn er staðsettur um 5 mínútna akstursfjarlægt frá Carrefour í Torrevieja.

 

 

Nýr vörubæklingur frá Carrefour, Torrevieja

Nýr vörubæklingur frá Carrefour.

Þessi bæklingur gildir frá 12 júlí til 25 júlí 2018.

Carrefour, vörubæklingur.

Stærsta Carrefour verslunin á Torrevieja svæðinu er aftan við Habaneras verslunarmiðstöðina.

Gott aðgengi er að versluninni og gott vöruúrval.

,

Shopping night Torrevieja.

Föstudaginn 13. júlí n.k. verður svokallað SHOPPING NIGHT TORREVIEJA, en þá eru ýmsar verslanir í miðbæ Torrevieja með opið til miðnættis og sérstakt vöruverð.  Það eru yfir 45 verslanir sem taka þátt í þessu.

Á sama tíma verður ýmis skemmtun í boð, tónleikar, vinnustofur, DJ og götumálun.

Á síðunni www.shoppingtorrevieja.com má sjá upplýsingar um þennan viðburð, verslanir og staðsetningar á viðburðum.

shopping night torrevieja 2018